*Kristín*

*Bloggið mitt*

08.03.2007 21:01:59 / kristinj

Jæja búin að finna mér samastað !

http://mercedes.bloggland.is

 

Þar eru myndir og blogg :) Kíkið þangað og verið dugleg að blogga, einnig myndir af húsaflutningum !

 

Kristín kveður héðan að lokum !


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 20:29:17 / kristinj

* Óbyggðirnar kalla *

Hoppa kátur út um dyrnar
við blasir himininn,
himinblár er bláminn
himneskur jökullinn.

Óbyggðirnar kalla
og ég verð að gegna þeim,
ég veit ekki hvort eða hvernig
eða hvenær ég kem heim.

Bergmál óbyggðanna
svo bjart í huga mér,
leiður á öllu og öllum
hundleiður á sjálfum mér.

Óbyggðirnar kalla
og ég verð að gegna þeim,
ég veit ekki hvort eða hvernig
eða hvenær ég kemst heim.

       Magnús Eiríksson

 

Já gaman að byrja þessa bloggfærslu á þessum texta :haha: Hann á mjög vel við mig.... 8) En við fórum af stað rúmmlega 9 og keyrðum uppí Húsafell og þaðan uppá jökul. Það gekk mjög vel og veðrið var svona tvísýnt, það voru ský svona hér og þar en sólin var samt alveg að sýna sig sko :lol: Hún var alveg að meika það þarna hjá okkur8)

En já svo vorum við AUÐVITAÐ fyrst uppí skála, en svo lá leiðin þaðan og í Þursaborgir. Þar var veðrið ekki alveg að gera sig, en þar stoppuðum við og borðuðum hádegismatinn :) Svo fórum við þaðan og niður af jöklinum og fórum inní Þjófadalinn. Þar var þessi yndislega fallegi GULI skáli... Hann var voða sætur sko.... :haha: En þaðan var einhver leið yfir að Hveradölum sem var bara rétt handan við smá fjall.... EN við komumst bara engan vegin yfir það... Reyndum og reyndum en það var ekki alveg að gera sig... Aðeins of bratt og frekar grýtt svæði sko..... Þannig að við ákváðum þegar klukkan var að verða hálf sex að bruna bara beinustu leið inní Kerlingafjöll, þar sem við áttum pantaðan skála.....

Nýji bíllinn hans pabba...

Við komum þangað um 8 minnir mig og dagurinn var rosa góður og veðrið frábært. En þegar við komum þá komumst við að því að það var næstum allt gaslaust og það var einn kútur í skálanum við hliðiná okkur en fólkið sem var þar var að nota hann....

Þannig að þar tók við hraðgrillun í forstofunni í kofanum....:haha: En það gekk vel maturinn var góður og allt það... En það kom upp annað vandamál... Allt vatnið var frosið og klósettið ónothæft..... :( En við redduðum því :D:D

Svo var rætt um ýmis mis skemmtileg mál, en um miðnætti var þreytan farin að taka völd, tek það fram að við Tryggvi vöknuðum rúmlega hálf sex því yndislegi sonur okkar vildi ekki að við myndum missa af ferðinni....:haha: En já við fórum því að sofa. Það voru þrjú svefnherbergi, og já ég gleymdi að segja með hverjum við fórum.... Við fórum með Steina(bróðir pabba) og Öldu konunni hans, Sigga(bróðir pabba) og Ágústu konunni hans (sem við fórum með Val í myndatöku til) og svo voru mamma og pabbi. Þau fengu semsagt herbergin, en það var svo svefnloft fyrir slatta marga en við Tryggvi sváfum þar.

Elskan okkar ;)

Við vöknuðum svo milli 9 og 10 og ég var ekki að nenna af fara á fætur...:haha: Samt langaði manni að kíkja út og sjá hvernig veðrið væri... Og það var bara nokkuð gott ;) Dagurinn boðaði gott. Svo mundi ég eftir því að ég var búin að lofa Berg bróðir að fara á móti honum að sækja krakkana hans norður. Þannig að við fórum bara að Hveravöllum og kallarnir tóku olíu og sollis þar. Síðan ákváðum við að fara norður Kjöl.

Við komum niður hjá Húnaveri og við keyrðum bara yfir Vatnsskarðið yfir í Varmahlíð en Bergur var á leiðinni frá Dalvík þá. Siggi og Steini fóru bara suður en mamma og pabbi komu með okkur. Svo komu krakkarnir og voru svo spennt að fara í bílinn með DVD inu og það var bara flýtt sér inní bíl og kveikt á mynd.

Svo þegar við ætluðum að fara að leggja af stað úr Varmahlíð þá var Lára og stelpurnar að koma frá Hólum og þær urðu samferða okkur líka suður. Við stoppuðum í Víðihlíð því krakkarnir voru að verða bílveikir að horfá DVDið :S Sem ég bjóst reyndar alveg við og slökkti bara á því. :P Svo stoppuðum við líka í Staðarskála og fengum okkur að borða og þannig og svo fórum við bara í bgn. Við skiliðum krökkunum og brunuðum svo heim og fórum að sofa kl 9 :D:D8| Við vorum svo þreytt....

 

En að lokum vildi ég bara segja að mercedes.bloggar.is síðan er ekki að gera sig og ég get ekki sett inn myndir þar, þannig að ég fékk leyfi hjá Val að nota hans albúm með honum, það er nóg pláss og það virkar best ;)

Endilega kíkið þangað og kvittið hjá krúttinu mínu, sem var b.t.w. bara heima í sveitinni meðan við vorum í ferðinni, og honum líkaði það vel ;)

Kristín - jeppagella :haha:;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 14:05:35 / kristinj

Veikindi og aftur veikindi.... :(

Já þetta eru búnir að vera frekar leiðinlegir dagar... Við Tryggvi vorum BÆÐI veik í gær, fengum eina af þessum ógeðslegu pestum, og að mínu mati þá ógeðslegustu. En Tryggvi er farin að vinna en ekki ég, ég er svo hrikalega slöpp eftir svona, má ekki við miklu... :cry:

En annars er lítið að frétta, nema ein frétt, Laufey Oddný og Bjarni Unnusti hennar eignuðust strák á gær, eða já ég er ekki alveg með það á hreinu hvort það hafi verið um kvöldið eða um nóttina, allvegana fengum við sms frá þeim í gærmorgun.... :haha: Það var engin smástrákur því hann var 4865 g (minnir mig) og 54 cm (minnir mig). :$:haha:

Til hamingju með piltinn skötuhjúin okkar ;)

 Núna er ég bara ógeðslega slöpp og aumingjaleg hérna heima, en var samt ógó dugleg og setti út rúmfötin og tók ALLAN óhreina þvottinn og er að setja í vél, miðað við allan þvottin þá verða þetta eflaust svona 40 þvottavélar sem ég þarf að setja í... :haha:

Við fórum á föstudaginn til Keflavíkur, það var starfsdagur í leikskólanum og við þurftum að leggja af stað kl 7 ! Það var pínu erfitt, en gekk samt alveg. Við fórum í Íþróttaakademíuna (eða hvernig sem maður skrifar þetta) :lol: En við byrjuðum að fara á fyrirlestur um Hreyfingu barna og svo fórum við í salinn og hituðum upp og fórum svo í leiki, sem við förum svo í með krökkunum í leikskólanum. Það var helv... gaman. Skemmtum okkur konunglega ! :haha:

Svo eftir það borðuðum við og fórum í sturtu og svo var komið að þvi að fara á fyrirlestur hjá næringafræðingi. Hún kenndi okkur og sagði okkur margt og mikið sem er gott að vita. T.d um offitu barna og margt fleira.

Svo var ég eftir í bænum í bakaleiðinni því að ég og Tryggvi fórum á leikritið Pabbann. Það var svo fyndið ég mæli með því að allir fari á þetta og sérstaklega þeir sem eru orðnir foreldrar, þetta er snilldin ein !!

Jæja ein mynd af gullinu okkar að lokum ;)

Hann er algjör útistrákur .....

 Hvernig væri svo að kvitta kannski ?? :|


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 22:03:06 / kristinj

Spurningar !!

Allir að svara :haha:

 

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?
2. Hve gamall/gömul ertu
3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?
4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?
5. Dreymir þig á nóttunni?
6. Hefuru séð lík?
7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?
8. Ertu að fíla Gogga Bush?
Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.
9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?
10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því.    Hvað myndi það vera?
11. Treystiru lögreglunni?
12. Hlustaru á kántrí?
13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?
14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?
15. Myndiru deita mig?
16. Í hverju sefuru?
17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?
18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?
19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?
20. Hvað finnst þér best um mig?
21. Er ég hot?
22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?
23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?
24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.
25. ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo að ég geti svarað þessu?

Allir að svar og líka þú Tryggvi.... :haha::haha::D


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 21:29:00 / kristinj

Fórum í snjóinn á þessari elsku :D

Já þessi bíll hefur reynst okkur alveg frábærlega, þessa daga sem við höfum átt hann ;)

U... Benzinn hefur ekki verið settur í gang síðan Krúsi kom... Frekar sorglegt, en hann fær gott vetrarfrí enda búin að standa sig alveg úber vel í allan vetur og dettur í gang í -15° c...

Í gær þá fórum við og náðum í Hondu "drusluna" hans Hjalta á bílakerru og það var nú ágætt, Gummi Þór, Gummi Ó og Hjalti voru með og ég kveikti bara á DVDinu í bílnum og þeir voru svo stilltir stákarnir :haha:  Svo þegar við komum heim þá þrifum við Krúsann því það var planað að fara á jökilinn í dag ;)

Og viti menn, við vöknuðum kl hálf sjö í morgun, reyndar bara af því að Snærinn okkar vaknaði þá... Við gerðum okkur reddý og brunuðum í Bgn með Val til ömmi sinnar og hittum svo Ísak og vini hans sem voru að fara uppá jökulinn, eða allavegana í þá áttina...

Mig minnir að í hópnum hafi verið ca 10 - 12 bílar, en allavegana var þetta frábær hópur, þetta voru allt Toyotur nema einn Cherokee og ein Patrolla, sem by the way ákvað að fara heim, því að hann var ekki alveg að virka eins og allar Toyoturnar gerður, og affelgaði svo tvisvar, æji ég vorkenndi honum soldið greyinu.... :| En já....

 Við fórum upp á jökulinn en það var skafrenningur og veðrið ekki alveg að gera sig, þannig að við og Ísak fórum niður af jöklinum og þá kom þetta geðveika veður. Við fórum bara Kaldadalinn og hittum Pattann þar. Við fengum bara rosa gott veður og þetta var geðveikt gaman !!

 Og ef Ísak les þetta þá viljum við bara þakka honum fyrir að bjóða okkur þetta var bara mjög gaman :D

Enda þetta bogg með þessari  mynd... Hún lýsir því nánast hversu góður dagurinn var... 8)

Fleiri myndir inná http://valur_snær.barnaland.is/album/ Njótið Vel !

Kveð í bili, er farin að sofa, Tryggvi LÖNGU sofnaður... Kristín


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 20:22:59 / kristinj

Bexý fær 10+ í einkunn !!

Jamm það kommentar enginn hjá mér nema Bexý... Hvað á það að þýða...:$ Nei mér er alveg sama mér finnst alveg nóg að hún geri það, ég er allavegana ánægð með hana ;)

Já ég er alveg miður mín.... Ég veit að ég á að fara að læra og taka til og setja í þvottavélina og hengja upp og allt það, en ég get ekki hugsað mér að báðir bílarnir mínir standi bara úti skítugir og í kuldanum....

Það liggur við að ég láti Tryggva fresta húsafamkvæmdum og segi honum að redda bílskúr núna, í minnsta lagi 65 m2 .....:haha: En já ég tók samt mynd útum gluggan í dag af elskunni minni... Hann er bara svo skítugur að ég skammast mín, en samt verð ég að setja inn mynd.... :::::

Svo er ég líka í vandræðum... Ég finn engann bílskúr sem þessi kemst inní.... :$ En ég leita enn.... Ég skamma mömmu og pabba á hverjum degi fyrir að selja húsið.... !! :cry: En þvottastöðin á Shell verður að duga þangað til að ég finn eitthvað annað.... Og svo er þetta frost komið aftur ekkert hægt að þrífa úti.... :S

Tryggvi átti afmæli á lau. og hann byrjaði morguninn á því að steypa 4 vegginn fyrir húsinu.... Við Valur fórum í Bgn og horfðum á tapleik hjá mömmu og keyptum svo Köku ársins handa Tryggva, í tilefni dagsins....Svo fórum við og borðuðum kökuna og svo náði ég í Söndru í FLJÚGANDI hálku og hún passaði á meðan ég bauð Tryggva út að borða.. Á Hótel Hamar... Það var ekkert smá gott.... Svo hittum við Unnar á 100 Cruisernum hans pabba síns og mér leið svo vel því ég hélt að ég myndi ALDREI eignast flottari bíl en þann bíl, en viti menn, ég var á flottari bíl en hann :haha: Jamm svo var bara rúntað uppum sveitir og Ásgeir og Steinunn pikkuð uppí.. Svo fórum við á Hvanneyri og kíktum á barinn en við stoppuðum ekki þar... Fórum bara heim um 2...

Ég pantaði svona "kjánahúfu" á Val Snæ... :

Er hann ekki sætur ;)

Kristín kveður í bili... Einn ánægðasti bílaeigandi í heimi:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 23:19:49 / kristinj

Draumabíllin kominn heim í hlað !!!!!! :D

Framhald af sögunni um DRAUMINN :) ;)

uuu já hitt bloggið endaði með því að ég fékk svar frá Ísaki þegar ég var ekkað að ofsækja hann greyið :D .....

Svo fórum við uppá Langjökul með bjsv OK þarna á þarsíðustu helgi og ég var alveg að farast því ég var alveg viss um að einhverjir gaurar sem voru rétt á eftir okkur upp væru sko vinir hans Ísaks og ég var svo hrædd um að hann kæmi líka og ég var ekki að meika það... En við tókum með okkur 2 drengi úr sveitinni sem voru með Tryggva í bjsv. og það var þar á meðal, Eggert, vinur MINN :haha: Við fórum ekkað að tala um jeppa og hann segir að hann sé að vinna með gaur sem eigi geðveikan Cruiser.. Og ég spyr hvað hann heitir og hann segir Ísak.... Og ég bara fékk áfall !!:haha: Þetta var ekkert grín sko :D Svo leið og beið og allt var í gúddí þangað til að við komum niður...

Við vorum stopp niður við skála og það var útkall þannig að við vorum að skipta fólkinu niður í bíla... Og ég sat bara inní bíl og horfði upp og var bara svona að skoða bílana sem voru að koma niður.... OG svo sé ég að þarna kemur Cruiser... Og ekki bara einhver því ég vissi það um leið og ég sá ljósin að þetta var HANN 8| :P

Svo var Tryggi úti og hann og Eggert fóru að tala við hann en ég bara meikaði það ekki.... Ég var bara að farast, ég veit ekki hvað það er en þessi bíll náði bara svona asskoti vel til mín að ég gat ekki hugsað um neitt annað en hann alla leiðina heim, enda sá ég hann, bæði á gatnamótunum inn Kaldadalinn og svo aftur hjá Bitanum... :S

Ég hélt bara að ég gæti ekki meir.... :haha: Svona er ég klikk...:lol: En svo bara á mánudeginum minnir mig þá hringir Eggert í Tryggva og segir að eigandinn, Ísak, sé að spá í að selja bílinn og ég sá bara ekki sólina eftir það.... Ég bara grét mig í svefn og lífið var alveg ólifandi   :haha::haha::haha:

Við sáum hann auglýstann  4x4 á miðvikudegi, minnir mig, og Tryggvi hringir í hann á föstudegi... Þá er hann á leiðinni innað Hveravöllum og segist koma heim á sunnudag... Tryggvi hringir aftur á sunnudag og hann kemur að norðan og við skoðuðum hann í Bgn á sunnudagskvöldið...

Svo var lítið sem ég gat gert nema spjalla við sjóvá en þeir vildu ekki leyfa mér að kaupa hann en vildu frekar leyfa Tryggva það, þannig að það þýddi lítið fyrir mig að spá í því.... Tryggvi hefur nefnilega átt svo marga bíla og átt svo mikil viðskipti við Sjóvá að hann myndi fá lánið alveg helling lægra en ég....

Svo kom Tryggvi heim.... Úr Rvk á þriðjudaginn 30 Janúar á Draumnum mínum.... :haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:

Þið trúið því ekki hvað ég er hissa, díllinn er bara þannig að ég borga af þessu láni, þannig að ég þarf að fara að finna mér kvölvinnu... :haha:

So just wish me good luck with the new car ;) Ég elska hann næstum jafn mikið og Tryggva og Val, svo elska ég náttúrlega líka EA-517 og VA-786...

Kristín í sæluvímu kveður að sinni ;);)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 21:11:01 / kristinj

Stundum geta draumar manns ræst ;) !!!

Kristín - á Draumnum sínum ;) 8) :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 18:00:08 / kristinj

**** Ég trúi þessu ekki :D :D *****

Ohh ég var búin að skrifa færslu en ég var svo lengi að því að hún datt út :(

En vitiði hvað... Ég er svo spennt að ég er a springa, við erum að fara að gera kannski soldið og mér hlakkar svo til !!! Ég má ekki segja hvað, en ég varð bara að skrifa þetta hér...:haha: En þetta kemur allt í ljós á næstu dögum :haha::haha:

Uuuuu... Já við erum búin að vera í viku hérna heima hjá mömmu og ég við erum orðin svo þreytt á þessu flakki og óvissu og leiðindum... :cry: Mér langar náttúrulega að fara í mitt hús í dag og ekki seinna en í kvöld :haha: En það gengur víst ekki upp :|

Ég var að sækja um á Shell (sama gamla Shell já) þar vantar vaktstjóra á kvöld og helgarvaktir.... Er að hugsa um það sko....

En já tilkynning meðan ég man 8)

Land Cruiserinn okkar er til sölu....

Land Cruiser 90GX    Árg. ´97   Ekinn ca 250 þús.   Breyttur 38"   CB   NMT 

GPS   8 manna   og flr og flr.

Endilega hringið í síma 8692900 eða bara kommentið hér ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 10:37:15 / kristinj

Hvernig líst ykkur á ??

Já ég er búin að vera að fikta við þessar síður, bloggar síðan er ekki alveg að gera sig, mér finnst bakgrunnarnir ekki nógu spennandi þar....

En hvernig líst ykkur á þessa.... Nenniði að segja mér hvað ykkur finnst.... :lol:

Annars erum við bara heima hjá mömmu og pabba og ég er alveg komin með nóg af þessu flakki og leiðindum, ég vil bara fara að komast á minn stað !!!

Bæ í bili ....

Kristín


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 22:57:56 / kristinj

NÆSTA SÍÐA >>

Jamm er búin að ákveða mig og þessi datt í lukkupottin http://mercedes.bloggar.is

Þannig að það er bara málið að skella sér þangað og vera dulegri þar að kommenta :)

NÆSTA SÍÐA >>


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 23:14:19 / kristinj

Jæja gott fólk....

Ég er ekki alveg nógu ánægð með þessa síðu og þetta sirkus dæmi þannig að ég ætla að halda áfram að nota hina síðuna.... http://mercedes-benz.blog.is ...... og skrifið í gestabókina og kommentin... ég hef ekkert annað að gera en að lesa það þannig að ef þið mynduð gera það þá væri lífið mitt mikið skemmtilegra :haha: En já ég ætla að færa mig yfir á hina og þið meigið líka gera þa ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 11:47:24 / kristinj

Vöknuð !!!

Jæja nú þýðir ekkert að sofa til hádegis lengur því hann Valur Snær sér til þess að við vöknum svona á milli 7 og 8. Reyndar leggur hann sig aðeins svo. En já, helgin var bara mjög góð og hér kemu lýsing á henni :

Við byrjum á fimmtudeginum en þá va forkeppnin í Eurovision. Silvía komst EKKI áfram en lennti þó í 13.sæti. Sonja kom til okkar og horfði með okkur að gömlum vana !! :) Við erum núna alveg í Borgarnesi, hjá mömmu og pabba.

Á föstudaginn var síðasti ungbarnasundstíminn. Við fórum að sjálfsögðu og það voru, minnir mig, 12 krakkar og þar á meðal var Vildís og Steinunn. Það var kafað, buslað og leikið sér ! Eftir sundið komu Steinunn og Vildís til okkar og við pöntuðum okkur pítsu...Valur og Vildís skemmtu sér vel :)

Um kvöldið kíktum við aðeins rúnt á krúsernum en það var nú fátt og lítið að gerast.

Á laugardeginum var mikið að gera. Við fórum í útskrift hjá Laufey í bænum og svo aftur heim ti að horfá Eurovision keppnina. Helga kom og horfði með okkur. Þetta var bara skemmtileg keppni og um að gera að hrista aðeins upp ú henni, það er komið níg af einhverju væli. Eftir að Valur var sofnaður þá fórum við til Sonju í Eurovision- kveðju partý. Það var mjög gaman og sérstaklega það það rifjaðist upp fyrir mér þegar Soffía í Einarsnesi var að láta ÁKVEÐNA manneskju hlaupa útí garði í einu partýi hérna forðum daga, einfaldlega vegna þess að þessi ÁKVEÐNA manneskja var orðinn alltof drukkin (eins og oft áður) ! HEHE. Svo var farið frá Sonju á Dússa en það var nú ekkert gaman þar þannig að við Helga fórum bara á rúntinn með Tryggva og Árna.

photo

Á sunnudeginum þá fékk ég að sofa út !!! Jibbí !! Samt bara sko til 11. Svo löbbuðum við Valur til Láru og co. Valur svag bara í vagninum og við stelpurnar vorum inni og horfðum á Shark tale. Svo var svo kalt að við gátum ekki labbað heim aftur þannig að Tryggvi kom og sótti okkur. Mamma og pabbi fóru norður á móti Berg að sækja krakkana þannig að ég eldaði kjúlla og við buðum Arnari og Helgu í mat... Vona að þau séu enn á lífi ;) HEHE..
Svo var ekki mikið meira sko jú Helga og Valur skemmtu sér mjög vel í boltaleik...


Valur Snær er 5 mánaða í dag og er orðinn algjör gaur ! Hann fer í skoðun á morgun og þá fáum við að vita hvað hann er orðinn mikill hlunkur ;) 
 
Jæja bæjó í bíli !!

P.s. Fyrsta skipti ...>



» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 18:22:48 / kristinj

Segið YKKAR skoðun !!!!

Jæja ýmislegt að frétta frá mér sko. Við Valur erum núna í Bgn hjá mömmu og pabba því okkur langar aðeins að breyta til. Við komum á þriðjudaginn og er búin að gista hér næturnar síðan þá, nema eina. Þá vorum við uppí sveit. Svo sváfum við í fyrsta skiptið án Tryggva, eftir að Valur kom í heiminn... Það var svolítið skýtið. En jæja svo á fimmtudaginn þá fórum við með Helgu í Rvk að versla föt og leika okkur. Þaðv ar mjög fínt, ég var nefnilega hætt að passa í mikið af fötunum mínum. Ég stækkaði um EITT númer ca. !! Ég keypti mér gallabuxur, jakka, og gallapils.

En ekki nóg með það því sama dagin þá fór Tryggvi líka í bæinn og skipti Hiluxnum okkar í Land crusier ! Hann er svo klikk stundum :haha: En það er sko flott nú er bara vandamálið hvort við eigum að eiga nýja benzan eða krúserinn ?? Þið megið endilega taka þátt í skoðanakönnunni sem ég gerði um þetta. En Benzinn fór sko í "dekur" og það var gert við svona nokkur smáatriði og bíllinn er svo GEÐVEIKT flottur núna og mér langar svo að eiga hann.. En við ætlum eflaust að farað byggja þannig að ég veit ekki hvort það gengur nokkuð að eiga bílana :(

En í dag fórum við aftur til Rvk, ég, Valur og mamma. Mamma var að kíkja í búðir. Ég mátaði skó sem mér langar svo í en ég var ekki með pening !! :( !! Þannig að ef einhver er að fara í bæinn þá má hann alveg láta mig vita til að kippa skónnum fyrir mig :)

Mér langar svo að fá smá pásu frá Val en hann er svo óþekkur og vill bara mömmubrjóst að drekka þannig að ég get varla skroppið útí búð '(

Jæja ég ætla að setja inn myndir af benzanum og cruisernum von bráðar...

Mercedes Benz


Toyota Land Cruiser...

Síja !!


» 13 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 16:45:46 / kristinj

Bara fyrir hann Tryggva minn !

Jæja gott fólk ég hef ákveðið að nota blog.central frekar því Tryggva finnst betra að skoða hana :)
Annars er fátt að frétta af mér eins og vanalega. Mér leiðist bara endalega mikið og mér langar stundum ekki að ger NEITT. En það þýðit víst ekki að kvarta yfir því.





» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti